Fréttabréf Vörðunnar október 2009 (nánar)

8. október 2009

 

Vetrarstarf Slysavarnadeildarinnar Vörðunnar hefst næstkomandi mánudag 12. október með kynningarfundi í Gaujabúð, björgunarstöðinni við Bakkavör. Fundurinn hefst kl. 20.00.
Gestir á fyrsta fundi verða Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri en hún mun m.a. ræða öryggis- umferðar- og forvarnarmál yngstu og elstu bæjarbúanna.
Guðmundur Ásgeirsson í Nesskip kemur og kynnir hugmyndir varðandi Vörðuna í Suðurnesi.

Endurskinsmerki til allra grunnskólanema.
Nú þegar skammdegið nálgast er mikilvægt að nota endurskinsmerki. Til að hvetja til almennrar notkunar á endurskinsmerkjum fóru félagskonur í báða grunnskólana á Seltjarnarnesi og gáfu nemendum og kennurum endurskinsmerki.
Elstu grunnskólanemum var einnig kynnt starfsemi unglingadeildar björgunarsveitarinnar Ársæls en hún hittist á mánudögum kl. 19.00 í Gaujabúð. Nánari upplýsingar um starf deildarinnar má finna á heimsíðu hennar www.bjorgunarsveit.is

Slysavarnadagur í maí.
Deildin stóð fyrir slysavarnadegi um miðjan maí í samvinnu við Björgunarsveitina Ársæl og lögregluna. Dagskráin var fjölbreytt – hjól og hjálmar voru skoðuð, boðið upp á kassaklifur, siglingar o.fl. Deildin hafði þá nýverið fjárfest í “Candy-flos”-vél sem var prufukeyrð á slysavarnadaginn og vakti hún mikla hrifningu hjá yngri bæjarbúum.
Á slysavarnadaginn var einnig keppt í pönnukökubakstri og voru keppendur að þessu sinni Jónmundur Guðmarsson þáverandi bæjarstjóri og Petrea Ingibjörg Jónsdóttir formaður Vörðunnar. Mikið jafnræði var með keppendum og endaði keppnin á jafntefli.

Fjáraflanir og fleira
Slysavarnardeildin Varðan fjármagnar alla starfsemi sína með sjálfboðaliðastarfi
félagskvenna. Eins og hefur komið fram þá á deildin candyflosvél. Hugsunin er að nota hana í fjáraflanir og erum við tilbúnar að mæta á hinar ýmsu samkomur og selja canyflos.
Áhugasamir hafi vinsamlega samband við einhverja úr stjórninni.

”Neyðarkall” Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Nú í byrjun nóvember verður sala á “Neyðarkallinum” og verða félagskonur víða við sölu m.a. á Eiðistorgi og í Kringlunni og vonumst við til þess að bæjarbúar standi við bakið á okkur þá sem hingað til og taki vel á móti sölufólki okkar.

Munið að í umferðinni gerir hraðinn vont enn verra.

Númi á ferð og flugi
Slysavarnafélagið Landsbjörg og Brúðuleikhús Helgu Steffensen hafa í sameiningu settu upp brúðuleiksýningu byggða á bókinni um Núma. Sýningin verður sýnd í leikskólum Seltjarnarness nú í haust í boði slysavarnadeildarinnar. Sagan af Núma er námsefni sem gefið var út árið 2005. Því er ætlað elstu börnum leikskóla og 1. bekk grunnskóla. Markmiðið með námsefninu er að vekja börnin til umhugsunar um nánasta umhverfi sitt svo þau átti sig á hættunum sem þar geta leynst.

Öryggi barna í bílum – Seltjarnarnes í efsta sæti á höfuðborgarsvæðinu
Sú ánægjulega þróun hefur orðið að foreldrar sinna öryggi barna í bílum betur en verið hefur undanfarin ár. Á árinu 2008 var aðbúnaður barna í bílum við leikskóla á Seltjarnarnesi bestur ef tekið er höfuðborgarsvæðið og í fjórða sætir yfir landið allt. Stefnan er tekin á að verða í efsta sæti á landsvísu. Við fáum oft spurningu um það hvenær börn séu orðin nógu stór til þess að sitja í framsæti og í bílbeltum eingöngu. Bílbelti eru hönnuð fyrir einstaklinga sem náð hafa 36kg þyngd. Börn undir þessar þyngd eiga að nota sérstakan öryggisbúnað umfram öryggisbeltið, bílstól eða bílpúða með eða án baks. Börn undir 150cm hæð og 40kg þyngd mega ekki sitja fyrir framan uppblásanlegan öryggispúða og ættu því börn aldrei að sitja í framsæti nema hægt sé að slökkva á öryggisbúnaðinum. Það ber þó að taka fram að börn eru ávalt öruggari í aftursætinu. Í umferðarlögum segir að ökumaður beri fulla ábyrgð á því að farþegar yngri en 15 ára noti öryggis- og verndarbúnað. Geri hann það ekki má hann búast við að verða sektaður af lögreglu og að brot hans verði skráð í ökuferilskrá. Sektin nemur 10.000 kr. á hvert barn sem er laust í bílnum.

Heimasíða Vörðunnar
Deildin hefur sett upp heimasíðu www.landsbjorg.is/vardan Þar verða settar inn nýjustu fréttir af starfinu. Búið er að setja inn á síðuna alls kyns upplýsingar um félagið og starf þess frá stofnun. T.d. er búið að setja inn allar fundagerðir félagsins frá upphafi, stofnfélaga, myndir og sögu Vörðunnar. Við hvetjum alla til að skoða síðuna og sjá hvaða verkefni unnin hafa verið í þágu samfélagsins undanfarin 16 ár.

Félagsstarf deildarinnar
Megin tilgangur deildarinnar er að vinna að slysa- og forvörnum í okkar nánasta umhverfi. Haldin eru náskeið í skyndihjálp og öðru tengdu félagsstarfinu. Margt annað er gert til skemmtunar bæði hér heimafyrir og í styttri ferðum. Nú í haust fórum við í dagsferð um Reykjanes þar sem meðal annars var gengið yfir plötuskilin milli Evrópu og Norður Ameríku.

Mikið samstarf er milli kvennadeilda um allt land.
Kvennaþing er haldið annað hvert ár Þangað koma konur víðs vegar að og skiptast á skoðunum og hugmyndum. Samvinna deildanna á suðvesturhorninu er mikil sem m.a. felst í heimsóknum og sameiginlegum fundahöldum. Nú á fyrsta fundi okkar er stefnt að því að fá félagskonur úr Slysavarnasveitinni Dagbjörg úr Reykjanesbæ í heimsókn.

Dagskrá vetrarins verður með fjölbreyttu sniði og boðið upp á fræðsluefni og skemmtun í bland. Á fundum er boðið upp á kaffi og meðlæti sem félagskonur sjá um, gegn vægu gjaldi.

Fundadagar 2009-2010 eru þessir:
12. október Kynningarfundur – nýir félagar velkomnir.
9. nóvember Föndurfundur
7. desember Jólafundur
11. janúar Félagsfundur
8. febrúar Aðalfundur
8. mars Skemmtifundur/skemmtiferð

Fundirnir eru á mánudagskvöldum og hefjast kl. 20.00 í Gaujabúð. Þeir eru auglýstir hverju sinni með dreifibréfi til félagsmanna. Allar konur eru hvattar til að mæta á fundi og taka þátt í starfinu því slysavarnir koma öllum við.

Minningarkort Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Munið að láta Slysavarnadeildina Vörðuna njóta þess þegar þið sendið minningarkort. Síminn hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu er 570-5900 og einnig er hægt að senda kortin á netinu en heimasíðan er www.landsbjorg.is/vardan

Til baka


 

Flýtileiðir

Breyta um leturstærð