Slysavarnadeildin Varðan, Seltjarnarnesi var stofnuð 15. nóvember 1993. Markmið deildarinnar hefur frá upphafi verið að efla forvarnir í bæjarfélaginu. Starf deildarinnar hefur einkennst af slysavörnum barna. Deildin vill stuðla að auknu öryggi og slysavörnum m.a. með fræðslu til bæjarbúa og nýtur til þess aðstoðar frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg sem hún er aðili að. Varðan fjármagnar alla starfsemi sína meðsjálfboðaliðastarfi félagskvenna. Skráðir félagar í Vörðunni eru 40 konur. Allar tekjur sem Varðan aflar fer til forvarna og góðra verka í bæjarfélaginu.
Eftirtalin verkefni hafa verið framkvæmd og eru á dagskrá hjá Vörðunni.
Varðan er árlega með könnun við leikskóla bæjarins á því hvernig öryggi barna í bílum sé háttað.
Varðan er einnig með árlegar umferðatalningu og könnun á öryggisbeltanotkun ökumanna og farþega sem eru á ferð að og frá og innan bæjarfélagsins.
Varðan gefur árlega í upphafi skólaárs öllum grunnskólabörnum bæjarins endurskinsmerki og kynnum þeim öryggi þeirra.
Varðan er með hjólaskoðun á vorin í samstarfi við lögreglu þar sem deildin sér um hjálmaskoðn, og stillir hjálmana.
Varðan heldur slysavarnardag þar sem m.a. er sýnikennsla hvernig bregðast
skuli við minni háttar brunum og hvernig nota eigi handslökkvitæki og kunna að fara með það.
Varðan hefur haldið ýmis námskeið, leiðbeinendanámskeið um slysavarnir barna, námskeið um slysavarnir fyrir börn og blástursaðferð á börnum.
Deildin hefur gefið út dagatal “MUNDU MIG “ með myndum eftir börn úr grunnskóla bæjarins þar sem forvarnir eru í aðalhlutverki.
Íbúar bæjarins 75 ára og eldri voru heimsóttir og m.a. fara yfir hvort augljósar slysagildrur séu á heimilinu og hvernig má lagfæra þær.
Varðan styrkti bæjarfélagið til kaupa á hraðamælingakerru sem notuð er í bæjarfélaginu og varar ökumenn sem keyra á ólöglegum hraða eftir götum bæjarins.
Í upphafi skólaárs fylgist Varðan með umferð við Mýrarhúsaskóla og bendir ökumönnum/foreldrum á það sem betur má fara m.a. að hleypa börnum út úr bílunum gangstéttarmegin.
Varðan gaf hjartastuðtæki til Sundlaugar Seltjarnarness og hélt námskeið fyrir starfsmenn.
Varðan hefur styrkt björgunarsveitina Ársæl, m.a. til að fjármagna kaup á björgunarbátum fyrir sveitina.
Varðar færði Ársæli peningagjöf til kaupa á straumvatnsbjörgunar búnaði.
Varðan hefur boðið 12-13 ára börnum á Seltjarnarnesi uppá námskeið sem Rauði krossinn sér um "Börn og umhverfi"
Varðan færði Grunnskóla Seltjarnarness að gjöf 10 notendaleyfi fyrir forritið "Mind manager" sem ætlað er til kennslu lesblindra barna.
Varðan ásamt fleiri slysavarnardeildum og björgunarsveitum færðu Þjálfunarbúðunum á Gufuskálum peningagjöf ætlaða til lagfæringa á skemmu.
Vörðukonur hafa tekið þátt í hálendisgæslu ásamt björgunarsveitafólki yfir sumartímann.
Varðan og Slysavarnardeild kvenna í Reykjavík hafa séð um að elda fyrir björgunarsveitafólk í flugeldasölu fyrir áramót.
Varðan tekur þátt í sölu á Neyðarkalli Landsbjargar.