Grunnöryggisfræðslunámskeið STCW
Námskeiðið hefur að markmiði að fullnægja skilyrðum um öryggisfræðslu til sjómanna til samræmis við ákvæði laga og reglugerðar. Uppbygging og efni námskeiðsins tekur mið af og fullnægir þeim skilyrðum sem sett eru í kafla A-VI/1 og töflum A-VI/1-1, A-VI/1-2, A-VI/1-3 og A-VI/1-4 í STCW-kóðanum3, Evróputilskipun4 og reglugerð5.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er fimm dagar og er kennt um borð í skólaskipinu Sæbjörg sem og á slökkviæfingasvæði. Á námskeiðinu fær nemandinn fræðslu og þjálfun í skyndihjálp, eldvörnum, vinnuöryggi og sjóbjörgun.
Námskeiðið kostar 71.000 kr. og greiðist eftir að námskeið hefst.
Kennsluglærur: Grunnnámskeið Slysavarnaskóla sjómanna (adobe.com)
Skráning
Hægt er að skrá sig á námskeið með því að hringja í síma 5624884 eða senda póst á netfangið saebjorg@landsbjorg.is skrifstofa skólans er opin frá 8-12 og 13-15 alla virka daga.