Verndarskylda (fjarnám)

STCW A-VI/5 (SSO)

Næstu dagsetningar

  • 13.12.2024 - 13.12.2024
  • Tími: 08:15 - 15:15

Verndarskylda STCW

Námskeiðið hefur að markmiði að fullnægja skilyrðum um öryggisfræðslu til sjómanna til samræmis við ákvæði laga og reglugerða. Uppbygging og efni námskeiðsins tekur mið af og fullnægir þeim skilyrðum sem sett eru í kafla A-VI/6 og töflum A-VI/6-1 og 6-2 í STCW kóðanum1, Evróputilskipun2 og reglugerð3.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er einn dagur og er kennt gegnum fjarfundarbúnað sem nemandinn fær aðgang að áður en námskeið hefst, nemandinn þarf að vera við tölvu með myndavél og hljóði.

Námskeiðið hefur að markmiði að nemendur fái aukna þekkingu á siglingavernd í að: bera kennsl á hættur og ógnanir er varða vernd skips, viðhalda ástandi í samræmi við verndaráætlun skips, framkvæma reglubundið verndareftirlit um borð og nota verndareftirlitsbúnað og kerfi sem til staðar eru.

Skráning

Hægt er að skrá sig á námskeið með því að hringja í síma 5624884 eða senda póst á netfangið saebjorg@landsbjorg.is skrifstofa skólans er opin frá 8-12 og 13-15 alla virka daga.